Fyrir vinnustaði

  • Aðgengilegur fyrirlestur um hvað við getum öll gert til að efla eigin vellíðan, ánægju og árangur í starfi

    Fyrirlestrar

    Boðið er upp á fyrirlestra um vellíðan í starfi og starfsmótun. Fyrirlestrarnir henta stjórnendum og sérfræðingum, sem og almennu starfsfólki. Farið er yfir fræðin um vellíðan í starfi og starfsmótun þar sem áhersla er lögð á þá möguleika sem hver og einn hefur til að efla eigin vellíðan og árangur í starfi í takt við sett markmið fyrirtækis.

  • Á vinnustofunni gerum við æfingar til að skerpa sín okkar á það sem betur má fara

    Vinnustofa I

    Vellíðan í starfi og starfsmótun

    Á vinnustofunni er farið yfir helstu þætti í starfsumhverfinu sem hlúa að vellíðan. Einnig er ítarlega fjallað um starfsmótun (job crafting), fræðin um það hvað hver og einn getur gert til að efla eigin ánægju og árangur í starfi. Skoðuð eru fjölmörg dæmi um starfsmótun og þátttakendur fá tækifæri til að rýna í eigið starf og taka fyrstu skrefin í átt að betri líðan í starfi.

    Viðbröð við vinnustofunni hafa verið afar jákvæð en hér er umsögn þátttakenda á tæplega 50 manna vinnustofu fyrr í vor.

    "Prestafélag Íslands hélt menntadag fyrir félagsmenn og fékk Sigrúnu Þorgeirsdóttur til að halda vinnustofu um starfsmótun (e. jobcrafting).  Var mikil ánægja í hópi þátttakenda með vinnustofuna og umfjöllunarefnið, sem var afar gagnlegt og skýrt framsett. Það má auðveldlega tengja það aðstæðum og verkefnum prestsins og nýta til að styðja við eigin vellíðan í starfi."

    🌱 Sjá nánar hér

  • Markviss samskipti og styðjandi starfsumhverfi

    Vinnustofa II

    Markviss samskipti og styðjandi starfsumhverfi

    Vinnustofan hentar sérstaklega vel fyrir starfsdaga, jafnt fyrir stjórnendateymið sem og einstaka deildir eða allan starfsmannahópinn. 

    Vinnustofan er unnin í samvinnu við Ingu Þórisdóttir hjá Via Optima‍. Við leggjum áherslu á  fagmennsku og að vinnustofan sé praktísk, skemmtileg og skapi árangur sem endist.

    Ávinningur þátttakenda:

    •  Aukin meðvitund um eigin samskipti og áhrif þeirra á vinnustaðamenningu

    •  Hagnýt verkfæri til að bæta almenn samskipti og samvinnu

    •  Aukið sjálfstraust í krefjandi samskiptum 

    •  Meiri færni í að setja mörk, biðja um aðstoð og veita stuðning

    🌱 Sjá nánar hér