Vinnustofa II
Markviss samskipti og styðjandi starfsumhverfi
Góð samskipti eru ein mikilvægasta undirstaða árangurs á vinnustöðum. Samskipti móta hvernig við vinnum saman, hvernig okkur líður í starfi og hvernig vinnustaðamenning þróast. Styðjandi starfsumhverfi verður ekki til af sjálfu sér, við eigum öll þátt í að skapa það í gegnum samskiptin okkar.
Á þessari hagnýtu og fræðandi vinnustofu skoðum við hvernig við getum, hvert og eitt, haft áhrif á samskipti og starfsumhverfið með því hvernig við tjáum okkur, spyrjum, hlustum, setjum mörk og leitum eftir aðstoð.
Fjallað er um sálrænt öryggi og mikilvægi þess að starfsfólk upplifi að það geti komið skoðunum sínum á framfæri, spurt spurninga, deilt hugmyndum og bent á það sem betur má fara án ótta við neikvæð viðbrögð.
Þátttakendur fá tækifæri til að staldra við og skoða eigin samskipti, styrkleika og áskoranir og kynnast hagnýtum verkfærum sem nýtast í daglegum verkefnum. Markmiðið er að auka meðvitund um samskipti og styrkja færni til að byggja upp traust, virðingu og gott samstarf.
Á vinnustofunni er fjallað um:
Sálrænt öryggi – hvað það er, hvers vegna það skiptir máli fyrir árangur og hvað stuðlar að því.
Samskiptafærni – hvernig við getum styrkt eigin samskipti með virkri hlustun og góðri spurnartækni.
Ólíkar samskiptaleiðir – hvernig við getum aukið meðvitund um eigin samskiptastíl og leiðir til að takast á við erfið samtöl af meiri öryggi og virðingu.
Mörk í samskiptum – hvernig við getum sett skýr mörk og um leið viðhaldið góðum tengslum.
Að biðja um og veita aðstoð – hvernig stuðningur og samvinna getur styrkt bæði einstaklinga og teymi og stuðlað að styðjandi vinnustaðamenningu.
Fyrir hverja?
Alla vinnustaði sem vilja bæta samskipti, efla traust og ná árangri saman.
Leiðbeinendur
Höfundur og leiðbeinandi á vinnustofunni, ásamt Sigrúnu, er Inga Þórisdóttir hjá Via Optima, sjá nánar á viaoptima.is