Spurt og svarað
Hvað er starfsmótun?
1
Starfsmótun, job crafting ensku, felur í sér að staldra við og endurskoða hvernig við vinnum störfin okkar og eigum í samskiptum á vinnustað - til þess að njóta okkar betur.
Með starfsmótun finnum við leiðir til að gera meira af því sem við njótum okkar í, köllum eftir stuðning til að takast á við áskoranir og leggjum okkur fram við að eiga í góðum samskiptum. Jafnframt endurskoðum við viðhorf okkar til verkefna og samstarfsfólks.
Hvers vegna að móta eigin störf?
2
Starfsmótun hefur verið rannsökuð frá árinu 2001. Það sem ítrekað kemur fram að þeir einstaklingar sem starfsmóta líður betur í starfi og skila betri árangri. Jafnframt virkar starfsmótun sem forvörn fyrir kulnun í starfi og eykur helgun í starfi ( e. work engagement) og skapar þannig grunn að árangri einstaklinga, fyrirtækja og stofanna.
Hvað er nýtt í starfsmótun?
3
Áður en hugtakið starfsmótun kom til sögunnar var í fræðunum var gengið út frá því að stjórnendur hanni öll störf en sannreynt er að hönnun eða samsetning starfs hefur veruleg áhrif á líðan starfsfólks og árangur þess. Raunin er sú að þegar starfsfólk fær tækifæri til móta eigin störf út frá eigin áhugasviði og þekkingu, innan þess ramma sem þeim eru sett, þá njóta þeir sín einfaldega betur . Það skila sér í minna álagi og skapar orku, því þegar við fáum tækifæri til að láta ljós okkar skína, nýta þá færni sem við höfum yfir að ráða og hafa áhrif, þá líður okkur vel.
Hvernig fer starfsmótun fram?
4
Starfsmótun er ferli sem felur í sér fræðslu um þá þætti sem hafa áhrif á vellíðan og árangur í starfi. Starfsmótun hefst á því að rýna í eigið starf til að skoða hvað við getum gert, hvert og eitt okkar, til að gera starfið okkar áhugaverðara, verkefnin léttari og samskiptin áhrifaríkari. Það er gert með því að gera markvissar breytingar. Mikilvægt er að taka eitt skref í einu, jafnt og þétt, vinnusálfræðin er alveg skýr með það: margt smátt gerir eitt stórt.