Vinnustofa I
Starfsmótun: árangursrík leið til að njóta sín í starfi
Vinnustofan sameinar fræðslu, verkefnavinnu og umræður með það markmið að styðja þátttakendur í að efla eigin vellíðan í starfi. Farið er yfir helstu þætti í starfsumhverfinu sem hlúa að vellíðan. Einnig er ítarlega fjallað um starfsmótun (job crafting), fræðin um það hvað hver og einn getur gert til að efla eigin ánægju í starfi, en starfsmótun bæði kemur á og styður við helgun í starfi (work engagement) og virkar þannig sem forvörn við kulnun í starfi.
Markmið vinnustofunnar:
auka þekkingu á nærandi og verndandi þáttum í starfsumhverfinu
efla sjálfskoðun og meðvitund um eigin líðan í starfi
gefa þátttakendum hagnýt verkfæri sem nýtast í daglegu starfi
veita forvörn fyrir kulnun í starfi
styðja við ánægju og árangur í starfi
Fyrir hverja?
Vinnustofan er ætluð öllum sem eru tilbúnir að rýna í eigin störf og vilja taka markviss skref til að hlúa að eign vellíðan í starfi.
Vinnustofan hentar jafnt stjórnendum og sérfræðingum sem og einyrkjum og almennu starfsfólki.