Fyrir einstaklinga

  • ráðgjöf sem eykur vellíðan í starfi og dregur úr kulnun í starfi

    Ráðgjöf

    Boðið er upp á einstaklingsráðgjöf fyrir starfsfólk sem er tilbúið að rýna í eigin störf og taka markviss skref til að efla árangur og ánægju í vinnunni.

    Ef þú ert undir of miklu álagi, ert að leita leiða til að auka ánægju í starfi eða vilt ná betri árangri, þá ertu á réttum stað. Markmiðið er að hjálpa þér að móta starf sem hentar þér betur og gefur þér meiri orku, tilgang og ánægju.

    Ráðgjöfin er fyrir alla þá sem vilja taka meðvituð skref í átt að betri líðan í starfi – hvort sem þeir starfa sjálfstætt, eru stjórnendur, sérfræðingar eða hluti af stærra teymi. Ráðgjöfin snýst um að staldra við, ígrunda stöðuna og opna fyrir nýjar leiðir.

    Nálgunin byggir bæði á víðtækri reynslu úr atvinnulífinu og traustum fræðilegum grunni um vellíðan í starfi og starfsmótun (job crafting). Starfsmótun snýst um það sem hver starfsmaður getur gert til að móta sitt starf til að nýta betur eigin styrkleika og áhugasvið í takt við sett markmið. Með því að vinna markvisst með verkefni, samskipti og viðhorf er hægt að auka bæði ánægju og árangur í starfi.

    Ekki er nauðsynlegt að skipta um starf til að bæta líðan í vinnunni – stundum þarf aðeins nýja sýn, skýrari fókus og rétt verkfæri.

  • Stjórnendur fá ráðgjöf til að hlúa að eigin vellíðan í starfi sem og vellíðan síns starfsfólks

    Stjórnendaráðgjöf

    Boðið er upp á tvenns konar ráðgjöf fyrir stjórnendur.

    VELLÍÐAN OG ÁRANGUR STJÓRNANDANS

    Annars vegar snýst ráðgjöfin um hvað stjórnandinn getur sjálfur gert til að hlúa að eigin vellíðan í starfi. Auk þess fræðilega bakgrunns sem vísað er í lýsingu á einstaklingsráðgjöfinni hér að framan býr Sigrún að viðamikilli reynslu sem millistjórnandi hjá Kaupþingi, hótelstjóri á Hótel Holti og sem rekstarstjóri hjá Heilsuborg (nú Heilsuklasinn).

    Hins vegar felst í stjórnendaráðgjöfinni stuðningur til að efla árangur og ánægju teyma.

    VELLÍÐAN OG ÁRANGUR Í TEYMUM

    Ráðgjöfin byggir á fræðum um leiðtogafærni, vellíðan í starfi og starfsmótun, auk fræða um sálrænt öryggi á vinnustað ( psychological safety) sem er grunnur að öflugu teymi. Unnið er með samskiptafærni og sannreyndum aðferðum sem skapa árangursríka vinnustaðamenningu.

    🌱 Fjölmörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja sér stjórnendaráðgjöf.

  • Netnámskeið hjá Háskólanum á Akureyri hefur fengið mjög góð viðbrögð

    Netnámskeið

    🌱 Næsta námskeið hefst 13. október

    Námskeiðið er í boði hjá Símenntun Háskólans á Akureyri, nánari upplýsingar og skráning eru hér

    Á námskeiðinu er fjallað um hvað felst í vellíðan í starfi, hvað það er sem dregur úr vellíðan og eykur líkur á kulnun í starfi. Jafnframt er farið yfir mikilvægi stuðnings í starfi sem meðal annars felst í góðu skipulagi og samskiptum. Auk þessa er rætt um áhrif þess að hafa skýra ábyrgð í starfi sem og frelsi til athafna um hvernig verkin eru unnin og útfærð. Sagt er frá fjölmörgum raundæmum um hvernig starfsfólk hefur mótað störf sín til að bæta eigin líðan í starfi.

    Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur . Í upphafi hverrar viku fá nemendur aðgang að stuttum fræðsluerindum sem eru aðgengilegar á kennsluvef þegar hentar. Einu sinni í viku er sameiginlegur klukkustundar langur hittingur á Zoom þar sem efni fyrirlestranna er rætt og verkefni leyst til að finna praktískar leiðir til að nýta starfsmótun.