Á DÖFINNI

A woman with dark hair in a ponytail, wearing a cream-colored turtleneck sweater and small earrings, smiles while holding a dark blue mug with both hands, standing in front of a wooden wall.

Sigrún Þorgeirsdóttir er höfundur og leiðbeinandi vinnustofunnar. Sjá nánar hér

Starfsmótun: árangursrík leið til að njóta sín í starfi

VINNUSTOFA

Fimmtudaginn 24. september kl. 9:00 - 12:00

🌿 Skráðu þig hér

Vinnustofan sameinar fræðslu, verkefnavinnu og umræður með það markmið að styðja þátttakendur í að efla eigin vellíðan í starfi. Farið er yfir helstu þætti í starfsumhverfinu sem hlúa að vellíðan. Einnig er ítarlega fjallað um starfsmótun (job crafting), fræðin um það hvað hver og einn getur gert til að efla eigin ánægju í starfi, en starfsmótun bæði kemur á og styður við helgun í starfi (work engagement) og virkar þannig sem forvörn við kulnun í starfi.

Nánar um starfsmótun

Markmið vinnustofunnar:

  • auka þekkingu á nærandi og verndandi þáttum í starfsumhverfinu

  • efla sjálfskoðun og meðvitund um eigin líðan í starfi

  • gefa þátttakendum hagnýt verkfæri sem nýtast í daglegu starfi

  • veita forvörn fyrir kulnun í starfi

  • styðja við ánægju og árangur í starfi

Fyrir hverja?

  • Vinnustofan er ætluð öllum sem eru tilbúnir að rýna í eigin störf og vilja taka markviss skref til að hlúa að eign vellíðan í starfi.

  • Vinnustofan hentar jafnt stjórnendum og sérfræðingum sem og einyrkjum og almennu starfsfólki.

Almennar upplýsingar

  • Staður: Samkennd heilsusetur, Tunguhálsi 19, 2. hæð, 110 Reykjavík

  • Stund: 24. september kl. 9:00 - 12:00

  • Verð kr. 27.900

  • Hámarksfjöldi þátttakenda er 10